Sími 570 4330

Dægradvöl

Dægradvöl, sími 690-8706

Forstöðumaður: Anna Björk Marteinsdóttir  annabjork@vatnsendaskoli.is

anna

Starfsreglur fyrir Dægradvöl við grunnskóla Kópavogs

Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í  1. – 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Börnin eru skráð inn í Dægradvöl og fylgst vel með hvar þau eru að leik og starfi uns þau eru skráð út við brottför.

Stjórnun

Skólastjóri hvers skóla ber rekstrarlega og faglega ábyrgð á starfsemi Dægradvalar. Ábyrgð á daglegri starfsemi er í höndum umsjónarmanns.

Opnunartími

Opnunar- og gjaldtökutími Dægradvalar er frá því að skóladegi barnanna lýkur ( um kl. 13.20) til kl. 17.15. Dægradvöl er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á starfsdögum kennara á skólatíma. Dægradvöl er ekki opin í vetrarfríum skólanna. Starfsemi Dægradvalar hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi.

kubbar

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar   um vist í Dægradvöl  fást hjá viðkomandi skólum og á heimasíðu Kópavogs.

Matur

Öllum börnum í 1. – 4. bekk í Kópavogi er boðið upp á síðdegishressingu gegn greiðslu.

Gjald

Samræmt gjald er fyrir vist í Dægradvöl í Kópavogi. Gjaldflokkarnir eru fjórir og miðast þeir við eina, tvær, þrjár eða fjórar klst. á dag:

Allt að 20 klst. á mán.  kr. 6.300
21 – 40 klst. á mán.      kr.11.025
41 – 60 klst. á mán.      kr.14.700
61 – 80 klst. á mán.      kr.17.325

Matargjald                         kr.125 

Systkinaafsláttur er 50% af grunngjaldi, eða kr. 3.150, fyrir annað og 75% eða kr. 4.725 fyrir þriðja systkini. Systkinaafsláttur gildir einnig um yngri systkini sem eru í leikskóla eða í vistun hjá dagforeldrum. 

Greiðslur og innheimta

Innheimta dvalar- og matargjalda fyrir Dægradvöl fer fram hjá Innheimtudeild Kópavogsbæjar. Dvalargjöld skulu greiðast fyrirfram í hverjum mánuði. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 10 dögum síðar. Innheimta fer fram samkvæmt innheimtureglum Kópavogsbæjar. Ef skuldin er komin á þriðja mánuð er plássinu sagt upp frá og með næstu mánaðamótum þar á eftir. 

Börn með sérþarfir

Skólastjóri og umsjónarmaður Dægradvalar meta í samráði við foreldra hvort þörf sé á stuðningi við börn í Dægradvöl.  Sé þörf á stuðningi sækir skólastjóri um stuðning til sérkennsluþjónustufulltrúa sem metur umsóknina.

Ef velferð barns krefst þess skal umsjónarmaður Dægradvalar fá upplýsingar frá skóla um barnið. 

Starfsfólk

Í hverri Dægradvöl starfar umsjónarmaður sem ber ábyrgð á daglegu starfi. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 15 börnum að jafnaði á hvern starfsmann í Dægradvölinni. Skólarnir ráða einnig yfir fjármagni til að ráða kennara til starfa við sérstök verkefni eins og t.d. íþróttir, myndlist, heimanám o. s. frv. 

Húsnæði

Gert er ráð fyrir a.m.k. tveimur heimastofum fyrir Dægradvöl. Ef börnin eru  90 eða fleiri þarf að gera ráð fyrir þremur heimastofum. Auk heima-stofanna nýtir Dægradvöl húsnæði skólanna eftir þörfum. 

Starfsreglur samþykktar í skólanefnd 6.12.2004.
Breytingar á gjaldskrá tók gildi 1. janúar 2005.
Gjaldskrá staðfest óbreytt í skólanefnd  26. nóvember 2007.
Bæjarráð samþykkti hækkun gjaldskrár frá og með 1. jan. 2011.
Samþykkt í skólanefnd 31. janúar 2011.
Samþykkt í skólanefnd 16. janúar 2012.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica