|
Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í 1. – 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Börnin eru skráð inn í Dægradvöl og starfsmenn fylgjast vel með hvar þau eru að leik og starfi uns þau eru skráð út við brottför.
Stjórnun
Skólastjóri hvers skóla ber rekstrarlega og faglega ábyrgð á starfsemi Dægradvalar. Ábyrgð á daglegri starfsemi er í höndum umsjónarmanns.
Opnunartími
Opnunar- og gjaldtökutími Dægradvalar er frá því að skóladegi barnanna lýkur (um kl. 13.20) til kl. 17.10. Dægradvöl er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á starfsdögum kennara á skólatíma. Dægradvöl er ekki opin í vetrarfríum skólanna. Starfsemi Dægradvalar hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi.
Umsókn
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um vist í Dægradvöl fást hjá viðkomandi skólum. Umsóknareyðublað er á heimasíðu Vatnsendaskóla, www.vatnsendaskoli.is á forsíðu undir liðnum eyðublöð.
Matur
Öllum börnum í 1.–4. bekk í Kópavogi er boðið upp á léttar máltíðir gegn greiðslu efniskostnaðar. Gjald fyrir miðdegishressingu í Dægradvöl Vatnsendaskóla er kr. 70.- á dag.
Gjald
Samræmt gjald er fyrir vist í Dægradvöl í Kópavogi. Um er að ræða fjóra gjaldflokka og miðast þeir við eina, tvær, þrjár eða fjórar klst. á dag. Frá og með 1. janúar 2004 er grunngjald kr. 5.250,- fyrir eina klst. eða minna á dag, kr. 8400,- greiðast fyrir 2 klst. á dag, 10.500,- fyrir 3 klst. á dag og 12.075,- fyrir meira en þrjár klst. á dag. Systkinaafsláttur er 50% af grunngjaldi (5.250 kr.) fyrir annað og 75% fyrir þriðja systkini.
Greiðslur og innheimta
Innheimta dvalar- og matargjalda fyrir Dægradvöl fer fram gegnum banka. Dvalargjöld skulu greiðast fyrirfram í hverjum mánuði. Sé skuld ekki greidd fyrir lok mánaðarins ber skólastjóra að senda áminningarbréf eftir þann 21. og segja plássinu upp frá og með næstu mánaðar-mótum þar á eftir.
Nemendur með sérþarfir
Gerðar eru sérsakar ráðstafanir í Dægradvöl vegna nemenda með sérþarfir.
Starfsfólk
Í hverri Dægradvöl starfar umsjónarmaður sem ber ábyrgð á daglegu starfi. Gert er ráð fyrir um það bil 15 börnum á hvern starfsmann í Dægradvölinni. Skólarnir ráða einnig yfir fjármagni til að ráða kennara til starfa í einstök verkefni eins og t.d. íþróttir, myndlist, heimanám o.s. frv. Umsjónarmaður Dægradvalar í Vatnsendaskóla er Berglind Jóhannsdóttir. Starfsmenn eru:
|