Fréttir af starfseminni
Nýtt símanúmer í Dægradvöl
fimmtudagur, 26 ágúst 2010

Í foreldrakönnun sem gerð var í maí 2010 varðandi þjónustu í Dægradvöl kom fram að erfitt væri að ná símasambandi við Dægradvöl. Í kjölfarið var ákveðið að forstöðumaður Dægradvalar yrði með GSM síma á sér á opnunartíma Dagradvalarinnar, þ.e. frá kl. 13:20 til 17:00. Hið nýja símanúmer er 690-8706 og biðjum við foreldra barna í Dægradvöl um að beina símtölum sínum beint í nýja númerið í stað þess að hringja í skiptiborð skólans.

Foreldrafélag Vatnsendaskóla
miðvikudagur, 25 ágúst 2010

Síðastliðinn mánudag fundaði foreldrafélag Vatnsendaskóla í fyrsta skiptið á nýju skólári þar sem drög voru lögð að starfi vetrarins og nýr fulltrúi í skólaráð kjörinn. Foreldrafélagið er samstarfsvettvangur foreldra og markmið þess er að efla og tryggja gott samstarf heimila og skólans, vinna að velferð nemenda, koma á framfæri sjónarmiðum foreldra um skóla- og uppeldismál og standa vörð um réttindi barna til mennta og aukins þroska. Netfang foreldrafélagsins er

Stjórn foreldrafélags Vatnsendaskóla veturinn 2010-2011:

Anna Lilja Þórisdóttir, formaður
Sigfríður Gunnlaugsdóttir, gjaldkeri
Styrkár Hendriksson, ritari
Margrét H. Þórarinsdóttir, meðstjórnandi
Sólveig Hrönn Sigurðardóttir, meðstjórnandi

 Fulltrúi í skólaráði er María Helen Eiðsdóttir.

Frá Skólamat
miðvikudagur, 18 ágúst 2010

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Vatnsendaskóla.

Það er okkur sönn ánægja að bjóða nemendum í Vatnsendaskóla áfram upp á skólamáltíðir. Afgreiðsla skólamáltíða hefst þriðjudaginn 24. ágúst og verð fyrir hverja máltíð í áskrift er 320 kr. Skráning fer fram á www.skolamatur.is Fyrsta áskriftartímabilið er frá skólabyrjun til og með 1. október.  Eftir það er áskriftartímabilið frá 4. hvers mánaðar til 3. næsta mánaðar.  Ekki er hægt vera í áskrift í minna en einn mánuð í senn.  Ef segja á áskrift upp þarf að gera það fyrir 27. dag hvers mánaðar. Sem dæmi þarf að segja upp mataráskrift í október fyrir 27. september.  Ef áskrift er ekki sagt upp fyrir þann tíma er litið svo á að hún haldi áfram næsta tímabil á eftir.

Lesa
Skólarúta í Þingahverfi
þriðjudagur, 17 ágúst 2010

Bæjarráð Kópavogsbæjar hafnaði á fundi sínum þann 22. júlí 2010 ósk Vatnsendaskóla um áframhaldandi skólaakstur úr Þingahverfi skólaárið 2010-2011 á þeim forsendum að gönguleiðir og lýsing í hverfinu hafi verið bætt.

Skólasetning
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

Skólasetning fer fram mánudaginn 23. ágúst á eftirfarandi tímum:

1.-3. bekkur klukkan 10:00 til 11:00

4.-7. bekkur klukkan 11:00 til 12:00

8.-10. bekkur klukkan 13:00 til 14:00

Innkaupalistar fyrir skólaveturinn 2010-2011
fimmtudagur, 05 ágúst 2010
Ánægjulegar niðurstöður úr sjálfsmati Vatnsendaskóla
föstudagur, 18 júní 2010

Á nýliðnu skólaári 2009-2010 hóf sjálfsmatsteymi skólans að leggja fyrir rafrænar kannanir meðal starfsfólks og foreldra skólans. Niðurstöðurnar eru nú aðgengilegar í pdf skjölum undir tenglinum Sjálfsmat - Kannanir 2009-2010 á heimasíðu skólans.

Niðurstöðurnar eru á margan hátt mjög ánægjulegar fyrir skólann. Sem dæmi má nefna að 93% foreldra í 1.-4. bekk geta mælt með skólanum við aðra foreldra, sjá meðfylgjandi mynd. Í þessum bekkjum voru 175 börn eða 49% af heildarfjölda nemenda. Niðurstöðurnar eru á margan hátt einkennandi fyrir  þær spurningar sem lagðar voru fyrir í öllum bekkjum skólans.

Þó að margt bendi til umtalsverðrar ánægju meðal foreldra eru vísbendingar um þætti í skólastarfinu sem betur mega fara. Þar af leiðandi verður tíminn fram að næsta skólaári 2010-2011 notaður til að gera úrbótaáætlun á þeim sviðum sem unnið verður eftir í framtíðinni.

Með þakklæti fyrir gott samstarf á liðnu skólaári og ósk um gleðilegt sumar,
starfsfólk Vatnsendaskóla.


Dagatal
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Vika 35 1 2 3 4
Vika 36 5 6 7 8 9 10 11
Vika 37 12 13 14 15 16 17 18
Vika 38 19 20 21 22 23 24 25
Vika 39 26 27 28 29 30
Á döfinni
Námskynningar fyrir foreldra og nemendur kl. 8:10-9:10
16. September, 2010

Samræmd próf í ísl. hjá 10. bekk.
20. September, 2010

Samræmd próf í ensku hjá 10. bekk.
21. September, 2010

Samræmd próf í stæ. hjá 10. bekk.
22. September, 2010

Samræmd próf í ísl. hjá 4. og 7. bekk.
23. September, 2010
Skjöl á vefnum
Svipmyndir úr skólanum

Sumt efni á vefnum er vistað á PDF formi og þarf því Acrobat Reader til þess að lesa það. Smelltu á táknið hér að neðan til að sækja Acrobat Reader ókeypis frá framleiðanda.

get_adobe_reader.gif