Sími 570 4330

Námsráðgjöf
  • rettir

Námsráðgjöf

Námsráðgjafi: Guðrún Elva Arinbjarnardóttir gudrunelva@vatnendaskoli.is

Guðrún Elva

Hlutverk námsráðgjafa er að vera talsmaður nemenda og trúnaðarmaður þeirra.

Námsráðgjafi stendur vörð um velferð nemenda og styður þá bæði í námi og í persónulegum málum.

Námsráðgjafinn er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda og aðstandendur þeirra, að undanskyldu 17 gr. Barnaverndarlaga frá árinu 2002 en þar segir:

Hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart.


Náms- og starfsfræðsla
Námsráðgjafi leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi. Hann veitir ráðgjöf um nám og störf að loknum grunnskóla og heldur utan um kynningar á framhaldsskólum. Námsráðgjafi veitir nemendum í 10. bekk einstaklingsmiðaða ráðgjöf varðandi val og umsókn á framhaldsskóla, ásamt því að gefa kost á því að nemendur taki áhugasviðskönnun.

Persónuleg ráðgjöf og stuðningur
Persónuleg ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum ýmiss konar aðstoð og stuðning svo að nemendur nái sem mestum árangri í námi og í einkalífi.

Stuðningur námsráðgjafa beinist m.a. að því að auka þekkingu nemenda á sjálfum sér, tilfinningum sínum, viðhorfum, áhuga og hæfileikum. Námsráðgjafi leitast við að efla sjálfstraust nemenda svo að nemendur finni sína eigin styrkleika og nýti hæfileika sína til fullnustu.

Góð félagsleg staða skiptir sköpum ef námsframvinda nemenda á að vera eins og best verður á kosið.  Námsráðgjafi mun, í samstarfi við umsjónarkennara, fylgjast með aðlögun nýrra nemenda og leita úrræða ef aðlögun gengur ekki sem skyldi, einnig sér námsráðgjafi um að fylgja eftir nemendum á milli skólastiga eða inn í framhaldsskóla þegar það á við.

Samstarf við aðra
Námsráðgjafi aðstoðar nemendur, kennara og foreldra við að leita lausna. Hann vinnur að forvörnum gegn einelti, vímuefnum og ofbeldi.
Einnig hefur hann samráð við aðra sérfræðinga innan sem utan skóla, svo sem sérkennara, hjúkrunarfræðing og skólasálfræðing.
Námsráðgjafi situr alla nemendaverndarráðsfundi.

Hægt leita til námsráðgjafa t.d. vegna:

•        Námserfiðleikar
•        Samskipta í bekknum
•        Stríðni
•        Einelti
•        Samskipta heima
•        Áföll
•        Sorg
•        Kvíði
•        Leiði
•        Þunglyndi
•        Ofbeldi
•        Áhyggjur
•        Fælni
•        Frumkvæðaleysi
•        Áhugaleysi
•        Sjálfsmynd og sjálfstraust
•        Hegðunarvandamál
•        Einbeitingaskortur
•        Fatlanir
•        Veikindi

Að hafa samband
Námsráðgjafi er í 100% starfi og til viðtals eftir samkomulagi.

Allir nemendur og forráðamenn þeirra eiga kost á að snúa sér til námsráðgjafa. Þeir geta komið að eigin frumkvæði eða beðið umsjónarkennara um að hafa milligöngu um viðtal.

Hægt er að hafa samband með því að koma, senda tölvupóst á gudrunelva@vatnsendaskoli.is eða hringja í skólann í síma 570 4330



Þetta vefsvæði byggir á Eplica