Sími 570 4330

Um skólann
  • ellidavatn

Saga skólans

Fyrsti skólasetningardagur í Vatnsendaskóla var 22. ágúst 2005. Skólinn stendur í hlíð sem hallar að Elliðavatni, einni helstu náttúruperlu höfuðborgarsvæðisins. Góðar forsendur eru fyrir hendi að tengja skólastarfið við umhverfið með virkum hætti. Göngustígur liggur frá skólanum niður að vatninu og tengist stígakerfi sem opnar leið að fjölbreyttum náttúru- og útivistarsvæðum. Tvær sérhannaðar náttúrufræði- og raungreinastofur eru í skólanum.

Fyrsta veturinn voru um 120 börn í 1.-6. bekk í skólanum og á öðru starfsári voru nemendur um 200 talsins í 1.-8. bekk. Þann vetur komu börn fædd 1993 ný inn í skólann og urðu um leið elstu börnin í skólanum í 8. bekk. Á þriðja starfsárinu voru nemendur um 270 í 1.-9. bekk. Ári síðar voru þeir 317 1.-10. bekk og fyrsti árgangurinn útskrifaðist 6. júní 2009.

 Skólaár Árgangar / Fjöldi bekkja
 Fjöldi nemenda
 2005-2006 1.-6. bekkur
120
 2006-2007 1.-8. bekkur
200
 2007-2008 1.-9. bekkur
270
 2008-2009  1.-10. bekkur
317
 2009-2010  1.-10. bekkur / 20
355
 2010-2011  1.-10. bekkur / 21 387
 2011-2012  1.-10. bekkur / 22 426

SnjórHaustið 2005 var ein kennsluálma tilbúin til notkunar. Önnur kennsluálma og verkgreinahús bættist við haustið 2006 og unglingaálman var tekin í notkun á þriggja ára afmæli skólans haustið 2008. Á sama tíma  var skrifstofuhúsnæði, bókasafn og mötuneyti opnaði. Síðasta bygginaáfanganum lauk með vígslu samkomusalar 26. janúar 2012.

Bygging
Ár
 1. kennsluálma (yngsta stig)
Haust 2005
 2. kennsluálma (miðstig) og verkgreinahús.
Haust 2006
 3. kennsluálma (unglingastig), skrifstofa, bókasafn og mötuneyti.
Haust 2008
Samkomusalur, tónmenntastofa og félagsaðstaða (Dægradvöl og félagsmiðstöðin Dimma)
Janúar 20012




Þetta vefsvæði byggir á Eplica