Sími 570 4330

Fréttir

Vatnsendaskóli flaggar Grænfánanum í annað sinn

GrænfáninnHaustið 2007 var ákveðið að Vatnsendaskóli yrði umhverfisvænn skóli. Um leið fór hann á græna grein hjá Landvernd með það að markmiði að flagga Granfánanum eftir tvö ár. Það markmið náðist og höfum við nú flaggað fánanum síðan haustið 2009. Frá þeim tíma höfum við tekið fleiri skref í umhverfismálum með það að markmiði að halda Grænfánanum tvö ár í viðbót. Í desember 2011 var ljóst að því markmiði var náð og munu fulltrúar frá Landvernd því afhenda Grænfánann í annað sinn í Vatnsendaskóla fimmtudaginn 26. janúar 2012.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica