Sími 570 4330

Fréttir

Katrín Kemp sigraði ljóðakeppni grunnskóla Kópavogs

ljodakeppniLaugardaginn 21. janúar síðastliðinn fór fram árleg hátíðardagskrá í Salnum sem tileinkuð er minningu Jóns úr Vör. Þar voru 10 grunnskólanemendur úr Kópavogi heiðraðir fyrir frumsamin ljóð sín og átti Vatnsendaskóli fjóra fulltrúa í þeim hópi. Þeir eru Anna, Baldvin Snær, Steingrímur Bersi og Katrín Kemp en svo skemmtilega vill til að þau eru öll nemendur í 9. Bláberjalyngi. Það var svo Katrín Kemp sem þótti standa öðrum ljóðahöfundum í grunnskólum Kópavogs fremst og hlaut hún sérstaka viðurkenningu að launum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica