Sími 570 4330

Um skólann

Saga skólans

Fyrsti skólasetningardagur í Vatnsendaskóla var 22. ágúst 2005. Skólinn stendur í hlíð sem hallar að Elliðavatni, einniellidavatn helstu náttúruperlu höfuðborgarsvæðisins. Góðar forsendur eru fyrir hendi að tengja skólastarfið við umhverfið með virkum hætti. Göngustígur liggur frá skólanum niður að vatninu og tengist stígakerfi sem opnar leið að fjölbreyttum náttúru- og útivistarsvæðum. Tvær sérhannaðar náttúrufræði- og raungreinastofur eru í skólanum.

Fyrsta veturinn voru um 120 börn í 1.-6. bekk í skólanum og á öðru starfsári voru nemendur um 200 talsins í 1.-8. bekk. Þann vetur komu börn fædd 1993 ný inn í skólann og urðu um leið elstu börnin í skólanum í 8. bekk. Á þriðja starfsárinu voru nemendur um 270 í 1.-9. bekk. Ári síðar voru þeir 317 1.-10. bekk og fyrsti árgangurinn útskrifaðist 6. júní 2009.

 Skólaár Árgangar / Fjöldi bekkja
 Fjöldi nemenda
 2005-2006 1.-6. bekkur / 7
120
 2006-2007 1.-8. bekkur / 11
200
 2007-2008 1.-9. bekkur / 14
270
 2008-2009  1.-10. bekkur / 18
317
 2009-2010  1.-10. bekkur / 20
355
 2010-2011  1.-10. bekkur / 21 387
 2011-2012  1.-10. bekkur / 22 426

SnjórHaustið 2005 var ein kennsluálma tilbúin til notkunar. Önnur kennsluálma og verkgreinahús bættist við haustið 2006 og unglingaálman var tekin í notkun á þriggja ára afmæli skólans haustið 2008. Á sama tíma  var skrifstofuhúsnæði, bókasafn og mötuneyti opnaði. Síðasta bygginaáfanganum lauk með vígslu samkomusalar 26. janúar 2012.

Ár
Bygging
Haust 2005
1. kennsluálma (yngsta stig)
Haust 2006
2. kennsluálma (miðstig) og verkgreinahús.
Haust 2008
3. kennsluálma (unglingastig), skrifstofa, bókasafn og mötuneyti.
Janúar 20012
Samkomusalur, tónmenntastofa og félagsaðstaða (Dægradvöl og félagsmiðstöðin Dimma)

Útskriftarhópar

Vor 2009   10_mosalyng_2009  
Vor 2010  2009_2010_10kraekilyng  2009_2010_10blaberjalyng
 Vor 2011 2010_2011_10hrutaberjalyng  2010_2011_10sortulyng 
     



Þetta vefsvæði byggir á Eplica