Vatnsendaskóli fær styrk

Það er ánægjulegt að segja frá því að Vatnsendaskóli hlaut styrk frá Forriturum framtíðarinnar. Styrkurinn sem skólinn fékk er tvískiptur, annars vegar til kaupa á minni tækjum í forritunar og tæknikennslu og hins vegar til námsefnisgerðar í forritun.

Í ár styrkir sjóðurinn 30 skóla um sem nemur tæpum 12 milljónum króna að andvirði. Styrkur skiptast í tvo meginflokka, annars vegar tæpar 7,8 milljónir vegna námskeiða, námsefnisgerðar og kaupa á smærri tækjum í forritunar og tæknikennslu, og hins vegar rúmar 4,2 milljónir króna vegna tölvubúnaðar. Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nema yfir 40 milljónum króna. Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins.

Posted in Fréttir.